Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Hringhendur 2013

Hitamollan

Þorrinn drollar, deigur er
dofnar hrollur víða.
Hitamollan hlær að þér
hlákupollar, blíða. 


Nistið harða

Sólin hristi'af blíðum blund,
blóm við ystu vörðu,
vetur kyssti vota grund,
það varð að nisti hörðu.

Beinableik

Í polli mænir mædd og smeik
marfló kæn á rótið.
Kvik svo spænir beinableik
bakvið væna grjótið.


Ennið svarta


Krumminn glennir kalda tá 
í kroppi brennur hjarta.
Snjókorn fenna bleyta brá
bræðir ennið svarta.


Tvær hringhendur

5.2.2013

Vetrarnóttin

Sígur hljótt nú himnagnoð
hneygir þróttinn bjarta.
Ósköp skjótt sér vefur voð
vetrarnóttin svarta.

4.2.2013

Hnísuleikur

Hafið úfið hristir bak
hvítar þúfur rísa.
Tunglið hrjúfa lýsir lak
lykkju skrúfar hnísa.


Hlíðarkjólar

Myrka hríðin mæðir dimm
mjallar smíðar hóla.
Mjúka sníður gjólan grimm,
gráa hlíðarkjóla.

Stimamýkt

Þar sem brimið kyssir klett
í kalda glymur hnjúkur
ósköp fimur fýllinn nett
flýgur stimamjúkur

Bárukvika

Kollan skrikar björt á brún,
við bárukviku lyndir.
Öldu stikar, ýfir dún,
æðarblikinn syndir.


Lækjarsitra

Í sólarbrækju þornar þrá
þaraflækjur glitra.
Um fjörustækju flæðir hjá
fjörug lækjarsitra.

Skæð er norðanáttin

Skæð er norðanáttin ör,
ýfir borðið sjávar,
hylur sporð og hindrar för,
hrærir skorður gráar.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Höskuldur Búi Jónsson
Höskuldur Búi Jónsson

Ég yrki og blaðra.

249 dagar til jóla

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband