Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2015

Bóluþang

Þar sem ég var í útivinnu í dag og þurfti skyndilega að tefla við páfann þá ryfjaðist upp gott ráð, þ.e. ef þú ert staddur nálægt fjöruborði og fjarri salernisaðstöðu - ákvað að setja það í bundið mál:

Niðr'í fjöru nettur lít
í nibbu hangi.
Brúnan fel svo blautan skít
með bóluþangi.


Kaldur rani

Oft nú heyrist hnuss og dæs
hér á köldum rana,
því norðanvindur blæs og blæs
blæs af gömlum vana.


Málfrelsi

Munið það að margir hvá
og mega lítið segja.
Knappt sig aðrir kunna'að tjá
og kjósa því að þegja.

Hundur

Oft er blundar, undrahundur
upphátt geltir í bundnu máli,
um hundasundið, grund og glundur
og grænan lit á súru káli

Höfundur

Höskuldur Búi Jónsson
Höskuldur Búi Jónsson

Ég yrki og blaðra.

249 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 258
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 253
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband