Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2015

Æla


Ef fara vilt á fyllerí
í flugi skaltu pæla,
því rosalega rífur í
rauðvínskút að æla.


Heilræðavísur

Þegar finnst þér þörf á ró
frá þrasi ansi slöku.
Þá veistu að þú færð smá fró
í feitri peruköku.

Ef vinnan truflar, vekur þrótt
svo verk'í undirhöku.
Þú af gleði getur sótt
þér góða peruköku.

Ef þig vantar þæga þögn
í þrautum lífs og vöku.
Þú gætir reynt að eta ögn
af úrvals peruköku.


Dóri á Kóngseynni

Ölduhæðir Halldór fer
hafsins skæð er leiðin.
Á Kóngsey æðir kringum sker
hjá karli glæðist veiðin.

Þó að aldan úfin sé
ekkert Halldór tefur.
Út í kaldann, karlinn sté,
Kóngsey valdið hefur


Höfundur

Höskuldur Búi Jónsson
Höskuldur Búi Jónsson

Ég yrki og blaðra.

243 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 52473

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband