Leita í fréttum mbl.is

Ferðasagan.

Frá Hafnarfirði hægt fór fley
hálf var ferðin.
Stefnulaust sem hlöðuhey 
en hvasst sem sverðin.

Öldur klauf sætt ofurskip
á átta mílum.
Framhjá hval með sælusvip

og söddum fýlum.

Sjóskip gott fór gegnum él
gerði'ei skaða.
Því öll skip líða ljúft og vel
á litlum hraða.
 


Kuldakvæði

Rósir huldu rúðugler
ræðst ég því til vopna.
Sköfu munda skrönglast þver
skelf, loks bílin opna.

Gleðileg jól

Þó að sólin svífi lágt
og syrti hól og ós.
Þá fegra bólin frekar sátt
falleg jólaljós.

Klæði eignast krakkar skulu
svo köttur fái'ei börn að smakka.
Jafnvel litla ljóta dulu
láta skalt í jólapakka.


Nokkrar stökur

Grefur tíminn skörð í sker
skekur alla foldartíð
tekur burtu tangaver
tefur það ei elfan víð.

------------------

Gaf vel á bátinn er bálviðrið sótti
á ballarhaf skelin mín fór hægt í mót.
Hratt þá mig sótti að alsherjar ótti
ætli nú losni burt kjölfestubót.

Þandi sig brimið og bölvaði kallinn
því báturinn fylltist af löðrinu hratt.
Draup vætan uppfyrir dekkið og pallinn
dásemdir lífsins ég hafði þá kvat


Mjög gamall hegri.

Eldgamall argur einn hegri
aldrei fyrr sást nokkur tregri 
hér sást eitt kvöld
hálft fyrir öld
en hann var þá allnokkuð fegri.

Kúhegrar baula sem kýrin
og köld þykir þeim nokkuð mýrin
þeir snyrta sitt stél
og stífa það vel
því flott þykir þeim frónsku dýrin.

Og kúhegrinn gáttaður getur
ei gleymt álft sem kynntist hann betur
vængir sem krít
væn var og hvít
og vonlaust að finna um vetur. 


Nokkrar stökur

Gáttaþefur gægist brátt
um gátt með nefið.
Það er ekki alveg gefið
að hans batni jólakvefið.

Vinnan göfgar Gáttaþef,
um ganginn skríður.
Ilmi jóla eftir bíður
ofurhægt nú tíminn líður.

--------------

Jólalambið löngum hef vel metið.
Stutt var líf þess, leikur - glens
en ljúft er hangiketið.

Appelsínið endalaust ég sötra.
Þar til ég fæ sykursjokk
þá sit ég bara'og nötra.

Dyggðaþungur þrauka ég öll læti
Stundum mig hratt þreytir þraut þ
essi jólalæti.

--------------

Niður- er ég ekki -dreginn
æðis- för mín þykir -leg
-strauminn fylgt hef fagran megin-
far- um gengið breiðan -veg

--------------

Unni sigli sjónum á
sífellt yglir bára
illir fyglar fljúga hjá
fimir hrygla Kára.

--------------

Sökkur þungar rífa rið
riðar neta falla nið
niður hafsins dimma djúp
djúpið hefur svartan hjúp.


Stúfur

Stúfur kom þá, stuttur var
stirður óð hann skafla
þegar snjóinn þunna skar
þurr varð ei við nafla.

Naflakaldur náði kot
það næturhúmið langa.
Í eldhúsanna skúmaskot
skyldi leita fanga.

Lágvaxinn í laumi hékk
í leyni út við glugga
þegar frúin svaf við sekk
þá sást í lítinn skugga.

Stelsjúkur með stutta brá
þar stemma fornar sagnir
nýja pönnu náði þá
að naga brunnar agnir.

Nú er væskill, vinadæll
vinsæll dansar jólin
skrúfaður með skeggið sæll
hann skýst í rauða kjólinn.

Nokkur kvæði

Enn fjölgar þeim sem hingað koma'í heim
hungraðir og enginn kann að fæða,
sem fáir munu taka höndum tveim
og tæpast munu'á lífi sínu græða.

----------------

Krúnan rís við klettagjá
kuldinn borg mun fjötra.
Dreg ég ýsur dotta smá
og dreggjar morguns sötra.

----------------

Þó að vekji viðbjóð, bjór
og vondur er af þefur.
Þeir slafra í sig slíkan flór
ef slenið dauft hann gefur.


Kuldakvæði

Frerinn kaldi kyssir mold
knúsar faldinn jarðar.
Þungt er gjald á þeirri fold
þrýtur haldið gjarðar.

Heimilisleysi

Vont mér þykir vaxtaprjál
vex nú strik og færist.
Það eykur fnyk í forðaskál
fólk á ryki nærist. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Höskuldur Búi Jónsson
Höskuldur Búi Jónsson

Ég yrki og blaðra.

100 dagar til jóla

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband