Leita í fréttum mbl.is

Á skíđum

Mamma var á skíđum:

Krafturinn af kerlu lekur
í klettasal.
Skyndilega skorpu tekur
og skíđar dal.

Flokkabönd

Um ţađ gćti ort stakt ljóđ
um föst flokkaböndin.
Undarleg er okkar ţjóđ
oft hún kyssir vöndin.


mbl.is Samfylkingin stćrst
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Tvćr stökur

Brosum gleitt og brýnum kverk
og bragafoldu yrkjum.
Nú standsetjum viđ stífluverk
og stuđlafossinn virkjum.

~~~~~~~~~~~~~~~~~

Vel mér líst á vísnatíst
sem vel hringsnýst hiđ innra
-sól fram brýst af sćla hlýst
ég séđ hef klístur ţynnra.


Lánaloforđiđ

Ég lána ei blásnauđum bjána
ţví bankabók vil ég ei smána.
En af ţví ei dreg
ađ ef ţú ert ég
ađ endalaust mun ég ţér lána.


mbl.is Lánuđu sjálfum sér milljarđa
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Lćkjasonnetta

Nú trítlar norđangarrinn gengnar slóđir
og grösin hylja ţykkar flygsur kaldar.
Ţurrar rósir undir fargi faldar
í frosti titrar ísköld jarđarmóđir.

Í lćgđum ţegja lćkir frosnir hljóđir
í leiđslu horfa'á frera jökulskjaldar
ţeir minnast vors er vćldu nokkrir tjaldar
og vilja aftur stökkva'um fossahlóđir.

Ţví ţađ er sćla ađ líđa lágar grundir
leysast úr viđjum, hamrabeltin streyma
- litlir og frosnir, lćkir dreyma enn.

Íbundnir klaka, kaldir enn um stundir
í kuldaböndum gott er ţá ađ dreyma.
-frostiđ mun víkja, já voriđ nálgast senn.


Ljóđ - fyrsta uppkast

Nú trítlar norđangarrinn gengnar slóđir
og grösin hylja ţykkar flygsur kaldar.
Skorpnađar rósirnar undir fargi faldar
í frostinu titrar og skelfur jarđarmóđir.

Í lćgđunum agndofa lćkir frosnir hljóđir
í leiđslu ţeir tilbiđja frera jökulskjaldar
ţeir minnast ţó vorsins er vćldu nokkrir tjaldar
og varmann viđ strokur um brattar fossahlóđir.


Strćtóvísur 7 og 8 (gulliđ far)

Hugarfylgsniđ hrađar glćđir
höfugt far
gljúpt um borgargötur ćđir
gulliđ svar

Gulliđ far međ gatnablćti
götur sker
ţvers og kruss um kuldastrćti
klyfjar ber


Rýrnun

Ţetta er sjálfsagt skepnuskapur, en lćt ţađ vađa.

Í kasti víst kođnađi Jón
og Kidda ţá fylgdi stórtjón
á frjálslyndra fund
mćttu fimmhundruđ pund
Guđjón og Grétar Mar ljón 


mbl.is Mađur kemur í manns stađ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Ţórđur býđur fram krafta blađamanns.

Eftirfarandi kemur fram í fréttinni sem ég vísa í: 

Ţórđur Guđjónsson hefur ákveđiđ ađ bjóđa Sjálfstćđisflokknum krafta mína fyrir komandi alţingiskosningar...

Ég vona ađ Ţórđur fari ekki ađ bjóđa Sjálfstćđisflokknum krafta mína, ţá myndi ég eflaust lamast skyndilega - sjálfviljugur.

Ţessi útúrsnúningur var ókeypis og í raun góđverk dagsins af minni hálfu.

Lamast mun ţessi blogg-loddi
ef lýsa mun yfir hann Doddi:
ađ vinni ég senn
fyrir sjálfstćđismenn.
Ég er mjúkur og meyr eins og koddi.


mbl.is Býđur sig fram í 1.-4. sćtiđ hjá Sjálfstćđisflokki í NV-kjördćmi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Strćtóvísa 6 (stopp)

Vafa get ég öllum eytt
ég aldrei dey.
Strćtó minn hann stímar greitt
og stoppar ei.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Höfundur

Höskuldur Búi Jónsson
Höskuldur Búi Jónsson

Ég yrki og blaðra.

101 dagur til jóla

Sept. 2025
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband