Leita í fréttum mbl.is

Einstök staka

Gaurinn sem á götu lá
gáttaður á legi.
Steig upp, rak þá stórutá
í stein á batavegi.


Ein limra fyrir helgina

Best er að berjast við trega
á brúninni mun ég salt vega
lengst upp í sveit
ég sælu á reit
-á salerni sit virðulega.

Villa

Fínt er að græða og grilla
gjöful er mörg svikamylla.
En talning var hröð
og hlóðst því á blöð
hreinræktuð innsláttarvilla.

Er þetta nokkuð rímvilla hjá mér Wink


mbl.is Villur voru í útstrikunartölum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB

Um varmar grundir vors ég sté
vorfugl sá ég hnita.
Hvort brátt ég enda'í ESB
er engin leið að vita.


Virkar ágætlega

Hérna er niðurstaða mín:

kosn

Já nú vandast valið heldur
ég veit samt hvað skal gera.
Neðstur er hér graddinn geldur
sem geymist best í frera.


mbl.is Kosningakompás mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lundastaka

Það skal tekið fram að hér er augljóslega verið að tala um Grímsey á Skjálfanda en ekki Grímsey á Steingrímsfirði (fyrir þá sem ekki vita ;o). Ég þarf að fara að heyra í pabba og vita hvort lundinn sé kominn út í Grímsey á Steingrímsfirði.

Heim nú lundar ljúfir skunda
upp ljúkast stundagáttir.
Í hópum funda, hátt mál grunda
í holum blunda sáttir.


mbl.is Lundinn kominn í Grímsey
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drykkjulimra

Í hendi hef helvítis sull
hálf krúsin er samt hálffull
það kveikir ei bál
og bragðast sem ál
Egils bjór er varla Gull

Einnig mættu koma svona fréttir:

Enn einn var handtekinn áður
auðmaður peninga háður.
Sem í felum einn lá
með fúlgur í skrá
Já auðmaður andskoti fjáður.


mbl.is Stórfelld kannabisræktun stöðvuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagskvöld

Klént var flæðið, klakafrost
kveðskaps fastur hlerinn.
Því bergi'á víni'og bláum ost
nú bráðnar kvæðafrerinn.


Stökur og limrur vikunnar.

Hér er ein sakamálalimra:

Rannveig var Ragga að farga 
en rekan hún gerði'ana arga.
í gröfuna fór
því guminn var stór
og mokaði rúmmetra marga.

Svo er hér tvær stökur samvaxnar um karlkynsframbjóðendur (á leir var verið að spá í það af hverju karlar væru tregari til að flíka útvexti sínum til að heilla hitt kynið):

Frambjóðendur fara'í keng
er flagga prýðisketi,
í bláum þröngum buxnastreng
svo bólgan sjáist geti.
 
Margir karlar kunna ráð
konur til að lokka.
Leyndarmálið skal nú skráð:
þeir skella í buxur sokka.

Svo var frétt á visir.is: Kannaði leyndarmálin í kvennaklefum (lag Ísland ögrum skorið)
 
Klofið, klippt og skorið,
krúnurakað þétt,
barma hárlaus borið
blasir það við nett. 
-Hlýju hefur misst.
En nauðsyn er að rýja rétt
því raksturinn er list. 

Svo er hér heilræði fyrir helgina:

Klístraðu á kollinn gel
og kneifaðu svo vínið dátt
en farðu elsku vinur vel
og varlega í yfir-drátt.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Höskuldur Búi Jónsson
Höskuldur Búi Jónsson

Ég yrki og blaðra.

101 dagur til jóla

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband