Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2013

Fannhvít mjöll

Tómir keppir trítla völl
töðu seppar bíta.
Frelsið hneppir fannhvít mjöll
frerar teppið hvíta.

Fjöruferð

Í fjöru prúðan sáum sel
sæta hrúðurkalla,
klakarúðu, krummastél
og kuðungssnúðinn snjalla

Þaksins blámi

Enn er dagsljós ansi tregt
enn hér flaksast grámi.
Vor senn saxar vinalegt
vex þá þaksins blámi.

Ormahausar

Ormahausar upp nú gá
ísa fraus ei moldin.
Kolla hnausa kíkja á
klakalaus er foldin.

Sólarglennan falda

Grátt er hennar himnasvið
hrá er tvennan kalda.
Sjórinn rennur saman við
sólarglennu falda.

Birkikjarrið

Þó að myrkrið mari grátt
og magnlaust virki barrið.
Von er styrk því vorið brátt
vekur birkikjarrið.

Grenja gárurnar (aukahringhenda)

Bláar frenjast bárurnar
bát þær þenja'í klessu.
Rjúka'og grenja gárurnar
greyin venjast þessu.


Vetrarmuggan

Vetrarmuggan buslar blá
bærir ugga sína.
Sjóinn gruggar, syndir hjá
svævir huggun þína.


Uppfyllingahringhenda

Skugginn stígur, skelfir þig
skríða kvígur bjálka.
Er þú hnígur ögn á svig
úti flýgur hálka.


Sinustrá

Ó sólskinið er svo tregt
yfur dynur hula
Af því stynur stæðilegt
stráið sinugula.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Höskuldur Búi Jónsson
Höskuldur Búi Jónsson

Ég yrki og blaðra.

235 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband