Leita í fréttum mbl.is

Hryllingsvísa:

 

Varúlfur ţú vilt mig rífa'í sundur
verđi tungliđ alveg fölvagult,
Samt er eins og í ţér sé smá hundur
ef ađ tungliđ birtist trauđla fullt.


Vetur

Blómiđ kćfir kafaldsglýja
klessist snćviţakin jurt.
Angur svćfir andlit skýja
er ţau ţćfast hrakin burt.


Pólitísk staka

Ţó oft sé mikill munur á
milli hćgri'og vinstri.
Flokksgćđingar flestir ţrá
ađ fylgja sama mynstri.


Steindór Andersen heiđrađur

Steindórsbragur

Hér skal formanns flytja brag
fljóđ og drengir, ţögnum.
Međan stormur leikur lag
ljóđagengi fögnum.

Okkar Steindór Andersen
oft finnst best ađ kveđa.
Aldrei greindist andans slen
viđ orđin sést ei stređa.
 
Röddin hefur mikinn mátt
myndi rjúpu passa.
Undir nefi geymir gátt
geysidjúpan bassa.
 
Ţegar Iđunn sigldi sćt  
sveitt um lúđumýri,
ást og friđur allt allright
einn hélt prúđur stýri
 
Í pípu sína tóbak tróđ
tefldi djarft viđ Kára.
Kvađ svo fínust fćraljóđ
flóđsins svarta bára
 
Ef á miđum upp hann rauk
yfir drćgist strangi.
Á landleiđ Iđunn öldur strauk
oft á hćgum gangi.
 
Loks er masturs settist sól
sá vill frćđin kanna.
Settist fast í formannsstól
fornra kvćđamanna.
 
Hagyrđingar frekar fátt
fá til skós og klćđa.
En snjall hann syngur sönginn dátt
Sigurrósarkvćđa.
 
Veggi ennţá klifrar knár
karl á ţökum tiplar
Hvergi rennur, hvergi sár
hvergi‘á tökum skriplar.
 
Ţó karl sé hress viđ bland og bús
best skal nefna‘og rýna:
ađ milli ţess hann knúsar krús
hann knúsar Hrefnu sína.


Í Ţorskafirđi

Víđa kólnar vetrar senn
visna lendur kaldar.
Í Ţorskafirđi ţrauka enn
ţrettán sprćkir tjaldar.


Ţegar rignir

Ţegar rignir, rýkur aldan
rokiđ skemmir svefn og vöku
Ţá er fínt ađ fá sér kaldan,
fínan mjöđ og yrkja stöku.
 

 


Stökur til geymslu

Sáttur rölti vetrarveg,
vorsólin er ćđisleg,
lykt af sumri ljúft ađ dreg,
liti haustsins elska ég.

 

Í hliđi dökku hokir spenna
til heljar sálir togar.
En varla munu bátinn brenna
blautir vítislogar.

Sumarglóđ

Ţó ađ haustiđ ţenji kviđ,
ţagni bráđum fuglahljóđ,

Kári blístri, bćli friđ,
birtist ennţá sumarglóđ.


Limru ákall

Ég heyri oft undarlaegt ákall
og ćtla ađ hljómi ţar bláfjall
en karlinn skal gá
oft kallar mig á
úr hjallinum, lykkja af hákall.


Alnetiđ

Ţegar ég klárađi loksins ađ lesa allt alnetiđ:

Hérna lesiđ hef ég allt
og hrafliđ niđur párađ.
Alnetiđ hef sćtt og salt
sopiđ gleypt og klárađ.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Höfundur

Höskuldur Búi Jónsson
Höskuldur Búi Jónsson

Ég yrki og blaðra.

118 dagar til jóla

Ágúst 2025
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.8.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband