Leita í fréttum mbl.is

Besta land, nei næstbesta, nei....

Ég gerði smá leit á fréttavef mbl.is með leitarorðinu "lista". Kippti nokkrum fréttum hingað inn á bloggið að gamni, flest allt listar þar sem Ísland kemur við sögu. Þetta eru þær fréttir sem mér þótti áhugaverðastar frá febrúar 2008-febrúar 2009. Ég sleppti því t.d. að taka með heimslista íþróttamanna - Ísland í 100. sæti heimslistans í boccia er t.d. ekki mjög spennandi að mínu mati:

  • þri. 26.2.2008 - Fylgst með skattsvikamáli - Íslensk fyrirtæki mögulega á skattsvikalista sem Þýsk yfirvöld hafa undir höndum.
  • fim. 6.3.2008 - Warren Buffet ríkastur - Listi yfir ríkustu menn heims, tveir Íslendingar á lista. Björgólfur yngri er í 307. sæti og Björgólfur eldri í sæti 1.014.
  • mið. 2.4.2008 - Mikill vöxtur í útgjöldum vegna heilbrigðismála - Íslendingar í 10-11 sæti á lista OECD-ríkjanna yfir heildarútgjöld til heilbrigðismála.
  • mið. 9.4.2008 - Ísland framarlega í notkun upplýsingatækni - Ísland er í 8. sæti á lista Alþjóðaefnahagsráðsins yfir þær þjóðir sem eru í bestri stöðu til að nýta sér upplýsingatækni
  • 15.4.2008 - Írland bætist í hópinn - Í þessari frétt kemur í ljós að Ísland er á lista sem eitt fjögurra landa sem búa við mesta efnahagslega áhættu.
  • fim. 24.4.2008 - Glitnir stærri en Landsbanki - Íslensk fyrirtæki á lista bandaríska viðskiptatímaritsins Forbes yfir 2 þúsund stærstu fyrirtæki heims sem skráð eru á markað. Kaupþing á meðal 600 stærstu fyrirtækjanna.
  • sun. 27.4.2008 - Björgólfur Thor á lista yfir þá ríkustu í Bretlandi - Íslendingurinn Björgólfur Thor Björgólfsson er í 29. sæti lista Sunday Times í dag yfir ríkustu menn Bretlands.
  • þri. 6.5.2008 - Ísland niður um eitt sæti á lista yfir stöðu mæðra - Ísland er í þriðja sæti og fellur niður um eitt sæti samkvæmt árlegri skýrslu Barnaheilla, Save the Children í Bandaríkjunum, um stöðu mæðra í heiminum 2008.
  • mið. 14.5.2008 - HR á meðal 100 bestu viðskiptaháskóla V-Evrópu -  Íslenskur háskóli er samkvæmt úttekt hinnar óháðu stofnunar Eduniversal á meðal 50 bestu viðskiptaháskóla V-Evrópu.
  • fös. 23.5.2008 - Greinendur standa sig - Starfsmaður í íslenskættuðu fyrirtæki (í eigu Landsbankans) lendir í 10. sæti á lista yfir þá sem spáðu best allra um afkomu fyrirtækja á síðasta ári og annar starfsmaður í íslenskættuðu fyrirtæki (í eigu Straums-Burðaráss), lendir í öðru sæti í flokki þeirra er greina hlutabréf fyrirtækja í pappírs- og pökkunariðnaði.
  • lau. 7.6.2008 - Leggur áherslu á stöðugleika - Ísland lendir í 102. sæti af 131, þegar kemur að efnahagslegum stöðugleika.
  • fim. 12.6.2008 - Fegurstu konurnar ekki á Íslandi  - Ísland kemst ekki á topp 10 listan yfir fegurstu konur heims.
  • lau. 28.6.2008 - Ísland í öðru sæti - Ísland er í öðru sæti á lista Alþjóðaefnahagsráðsins, World Economic Forum í Sviss (WEF), yfir þau lönd sem þykja „best tengd“, eða best í stakk búin til að takast á við tæknivæðingu.
  • þri. 1.7.2008 - Danmörk best í heimi fyrir viðskiptalífið - Ísland er í sautjánda sæti og neðst af Norðurlöndunum af þeim löndum sem eru best fyrir viðskiptalífið. Liðlega 120 lönd eru á þessum lista Forbes.
  • fös. 1.8.2008 - Með 62 milljónir á mánuði - Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, var með tæpar 62 milljónir í skattskyldar tekjur á mánuði á síðasta ári, samkvæmt útreikningum Frjálsrar verslunar (þetta var reyndar á innlendum lista, læt það samt fylgja með að gamni).
  • fim. 14.8.2008 - Bjarkar-myndband eitt þeirra bestu - Myndband með íslenska tónlistamanninum Björk á top 10 MTV yfir bestu myndbönd allra tíma.
  • þri. 23.9.2008 - Spillingareinkunn Íslands lækkar - Ísland lendir í 7. sæti á nýjum lista stofnunarinnar Transparency International þar sem lagt er mat á spillingu í stjórnsýslunni. Ísland var í efsta sæti á þessum lista ásamt Finnlandi fyrir tveimur árum en hefur síðan lækkað og einkunn landsins er nú 8,9, var 9,2 í fyrra.
  • fös. 3.10.2008 - Krónan heldur einna verst verðgildi sínu - Íslenska krónan er í hópi þeirra gjaldmiðla í heiminum sem hafa staðið sig hvað verst í því að halda verðgildi sínu síðastliðið ár. Krónan í þriðja neðsta sæti af 179 gjaldmiðlum.
  • mið. 8.10.2008 - Ísland hækkar á lista um samkeppnishæfni þjóða - Ísland hækkar á lista Alþjóðaefnahagsráðsins um samkeppnishæfni þjóða úr 23. sæti 2007-2008 í 20. sæti 2008-2009.
  • þri. 14.10.2008 - Óraunhæft að engin skilyrði verði sett fyrir aðkomu IMF - Umræða um að Ísland eigi að reyna að komast á lista þeirra þjóða sem hlotið hafa aðstoð IMF (AGS). Áður höfðu lönd á borð við Tyrkland, Mexíkó, Rússland, Tæland, Víetnam, Indónesíu og Argentínu, komist á þann eftirsótta lista.
  • mán. 20.10.2008 - Landsbanki í slæmum félagsskap - Íslenski bankinn Landsbankinn lendir á lista yfir þau lönd sem sæta refsiaðgerðum á sviði fjármála frá hendi Breta. Á listanum má finna lönd eins og Súdan, Simbabve, Búrma, Norður-Kóreu, Lýðveldið Kongó... og Landsbankann. Þar er Landsbankinn einnig á lista með al-kaída samtökunum og talíbönum.
  • þri. 21.10.2008 - Er tími frjálshyggjunnar liðinn? - Hér er sagt frá því að Ísland HAFI verið í fimmta sæti lista Sameinuðu þjóðanna 2007/2008 yfir ríkustu þjóðir heims miðað við fólksfjölda. Nú stendur landið frammi fyrir skorti á innfluttri vöru, svo sem matvöru og fatnaði.
  • mið. 22.10.2008 - Fjölmiðlafrelsi mest á Íslandi - Öllum að óvörum þá er Ísland á toppnum yfir þau lönd þar sem frelsi fjölmiðla er mest, ásamt Noregi og Lúxemborg samkvæmt skýrslu sem samtökin Blaðamenn án landamæra gáfu út.
  • sun. 2.11.2008 - Mest áhætta á Íslandi - Ísland er efst á lista yfir þau ríki þar sem áhættumest er að fjárfesta, samkvæmt lista Credit Suisse.
  • mið. 12.11.2008 - Norræn lönd fremst í jafnréttismálum - Ísland í fjórða sæti af 130 á lista Heimsviðskiptaráðsins þar sem lagt er mat á stöðu jafnréttismála.
  • mán. 24.11.2008 - Ísland þriðja skuldhæsta ríkið - Hér er leitt að því líkum að á árinu 2009 verði Ísland í þriðja sæti á lista yfir þau ríki, þar sem hið opinbera skuldar mest í hlutfalli við landsframleiðslu. Aðeins Ítalía og Japan verða fyrir ofan Ísland.
  • þri. 9.12.2008 - Segja Bakkavör á svörtum lista - Íslenskt fyrirtæki kemst á svartan lista yfir illa þokkuð fyrirtæki í Evrópu og á heimsvísu að mati launþegasamtaka.
  • mið. 10.12.2008 - Icesave hástökkvari viðskiptaleitarorða í Google - Fyrirtæki í íslenskri "eigu" er efst á lista viðskiptaleitarorða í Google.
  • fös. 19.12.2008 - Íslenski skellurinn í 10. sæti - Ísland lenti í tíunda sæti yfir verstu fjármálahrunin sem urðu í heiminum á árinu 2008 samkvæmt lista sem Time hefur sett saman.
  • mán. 5.1.2009 - Á taplista Forbes - Íslendingurinn Björgólfur Guðmundsson er á lista Forbes-tímaritsins yfir þá milljarðamæringa sem töpuðu nánast öllu á liðnu ári. Í fyrra hafi hann átt eignir að upphæð 1,1 milljarð Bandaríkjadala.
  • mán. 12.1.2009 - Sjálfbær þjóðfélagsþróun mest á Norðurlöndunum - Ísland í sjötta sæti yfir lönd varðandi sjálfbæra þjóðfélagsþróun. Rannsóknin var gerð af samtökunum Sustainable Society Foundation og náði til 151 lands.
  • mán. 26.1.2009 - Geir Haarde sagður ábyrgur fyrir hruninu - Íslendingur kemst á lista yfir 25 menn sem breska blaðið Guardian birtir og segir að beri ábyrgð á efnahagshruni heimsins.
  • þri. 3.2.2009 - Bréf deCODE af aðallista Nasdaq - Hlutabréf íslensk ættaða félagsins deCODE, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, voru flutt af aðallista Nasdaq verðbréfamarkaðarins yfir á svonefndan Capital Market lista, þar sem fyrirtækið uppfyllti ekki kröfur aðallistans um markaðsverðmæti.
  • þri. 10.2.2009 - Ísland heilsusamlegast í heimi - Ísland heilsusamlegast í heimi, samkvæmt vefútgáfu Forbes.
  • fim. 12.2.2009 - Davíð Oddsson á vafasömum lista - Íslendingurinn knái Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, er á lista tímaritsins Time yfir 25 einstaklinga sem eiga sök á fjármálakreppunni. Listinn er birtur á forsíðu vefútgáfu Time.  
Yfirhöfuð nokkuð góður árangur hjá Íslendingum síðastliðið eitt ár.
Ísland Best í Heimi?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Höskuldur Búi Jónsson
Höskuldur Búi Jónsson

Ég yrki og blaðra.

33 dagar til jóla

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband