Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Stökur

Rímbankinn

Fyrir ţá sem ekki ţekkja til, ţá er rímbankinn algjör nauđsyn. Hann má finna á heimskringa.net

Ţegar kemst á kvćđaskriđ
kallar á mig Rímbankinn.
Ertu til ađ auka viđ
yfirdráttinn, kallinn minn.


Grímsey

Bćjarfelliđ fornt á brá
flóann Húna varđar,
varpar skrítnum skugga á
skrautiđ Steingrímsfjarđar.


HB Grandi

Sjúga fé úr sjónum enn
sćgreifarnir kćru.
Munu éta seđla senn
svínin laus viđ ćru.

Gleđilegt sumar

Fuglar syngja, fagnar kór
fljúga međal kvista.
Sáust bćđi sól og snjór
sumardaginn fyrsta.


Valhöll

Um Valhöll arka íhaldsmenn
aurugir međ hroka.
Skítinn hafa ekki enn
út ţar náđ ađ moka.

Stökur

Nokkrar stökur síđustu vikna:

Hvergi leynist löggin hlý,
leit er ströng ađ bita,
starar syngja dirrindí,
dreyma sumars hita.

Seinfćr Hellisheiđin er
helst til spillir geđi.
Vanbúnir ađ vanda hér

vekja litla gleđi.

Af útsýni lítil er ekla
og ţó enn sjáist lítiđ til rekla
ţá styttist í vor
og vex upp úr for
gróđur, sem gýs yfir, Hekla.


Íslenskir vetrardagar

 

Snjórinn tćtist tvist og bast,
tekur viđ smá logn, svo kul.
Einnig rigning, rok og hvasst,
rís loks fögur, sólin gul.

Frostburknar

Í morgun:

Út úr bílnum illa sá
mér elsku vinur, trúđu,
ţví frammí uxu frjálsir ţá
frostburknar á rúđu.


Kuldi

Frostrós brynnir, kuldakast
kelur skinn á sveini,
nartar kinnar, nagar fast
nístir inn ađ beini.


Litla hagyrđingamótiđ og áramótastaka

Göngumađur ansi oft
er utanvega.
Yndislegt er útiloft
og útilega.
 
Mjúkan snjó og myrkriđ svart
skal meta og vega.
Nauđsyn stundum einnig er
smá innilega.
 
Fjölgun okkar er ei grín
og eykur trega.
Samt er ávallt ansi brýn
smá uppilega.
 
-----
 
 
Allt er núna orđiđ hreint
áramótadrasliđ.
Hríđin, landiđ hefur skeint
hefst nú kuldabasliđ.

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Höfundur

Höskuldur Búi Jónsson
Höskuldur Búi Jónsson

Ég yrki og blaðra.

143 dagar til jóla

Ágúst 2025
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.8.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 54093

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband