Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Limrur

Syngur og hoppar

Ort haust 2014
 
Sólskríkjan hljóðlega syngur
því sumars er lokaður hringur
og bráðlega kroppar
í kornið og hoppar
fimlega'í fönn snjótittlingur.

Brestakort

Ég sá á internetinu brestakort fyrir Þingvallavatn - sjá hér https://orkustofnun.is/gogn/Teikningasafn/85.04.0589.pdf

Þetta er alveg upplagt orð til að búa til limru úr:

Ég þekki vel hugtakið hestasport,
og hef núna kynnt mér eitt brestakort,
en aldrei í riti
(altsvo af viti)
pistill mun birtast um prestaskort.


Rjúpur við Hvolsvöll

Við fjall eitt þar finnast ei lænur,
fljót eða lækir né sprænur

en um runnana smjúga
og af rælni þar fljúga
rjúpur, nú eða þá hænur.


Limra um regnið

Regnið á rúðunni lemur
rismikila tónana semur
um hverflynda sól
sem í suddanum kól.
Sumar með haustinu kemur


Móðir Theresa

Kredit þó minnki á korti
og kjararáð dragi úr skorti
eins og Theresa forðum
er ei forsetinn í orðum
með taumlausu grobbi og gorti.


Tortólsk limra

Frá Tortóla berst núna brækja
baneitruð, fnykur og stækja
og úr skattaskjóli
skríður nú drjóli
Sigmundur hrægammahækja.

Trump

Þó smjúgi oft ræpa um rump
og rjúki upp fnykur og prump
það allvel má þola
en úr eyrum ég skola
ef orðin ég heyri frá Trump.


Limru ákall

Ég heyri oft undarlaegt ákall
og ætla að hljómi þar bláfjall
en karlinn skal gá
oft kallar mig á
úr hjallinum, lykkja af hákall.


Limra

Áður fyrr eitrið menn sugu
ortu og limrur út smugu
en í neftóbaks tremma
tapaðist stemma
og stuðlar í fjarska burt flugu.


Limrulíki

Áður en yfir allt lýkur
oftast þá minnið það svíkur
samt molnar allt hrím
ef manstu þitt rím
og mætir þér blessaða vorið.


Næsta síða »

Höfundur

Höskuldur Búi Jónsson
Höskuldur Búi Jónsson

Ég yrki og blaðra.

236 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 52509

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband