Leita í fréttum mbl.is

Nokkrar stökur

Arnarnesingar hyggjast læsa að sér:
 
Íðilfagra Arnarnes
yndislegt og mikla
harðlæsum nú hliðum vés
og hendum síðan lykla.
 
Eftir jól:
 
Þó að það sé nokkuð næs
að næra sig um jólin,
kann að heyrast kröftugt dæs
er kemur aftur sólin.
 

Árið:

Sannleikur er sirka klár
þó sífellt efinn nagi:
Var það líkt og önnur ár
- yfir meðallagi?

 

Nýr forseti:

Nú er aftur voðinn vís
varla finnst þá paradís
Gleðin hverfur, hjartað frýs
hættir bráðum Óli Gríms.
 
 
 

Bloggfærslur 1. janúar 2016

Höfundur

Höskuldur Búi Jónsson
Höskuldur Búi Jónsson

Ég yrki og blaðra.

237 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 52504

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband