Leita í fréttum mbl.is

Nokkrar stökur

Kjaftinn lemur kjarrið hrjúfa 
karlinn þetta tefur.
Kindagatan, kræklótt, ljúfa 
kraftinn aftur gefur.

Nú er sumar veit ég vel 
samt vekur undrun mína,
er kinnar sleikja slydduél 
sem slæfa gleði fína.

Haust og sumar, vetur, vor
veldur jafnan hneisu.
Ávallt kuldi, eilíft hor 
og eg í lopapeysu.

--------------

Ferskt er Ísland, ekkert slór 
öskrar kórinn HÚ.
Knattspyrna og kaldur bjór 
korter yfir þrjú.

Í ólguhita öskra dátt
'ég er kominn heim'.
Takturinn í slökum slátt 
nú slátrum bjórum tveim.

 

Drukkið hef (og horft á spörk)
hálfar tylftir krúsa. 
Sá að nokkur setti mörk

seigur karlinn Musa.

 

Er nú ljóst að enn er Kól-
umbía í góðum málum. 
Ljóst er því að liggur Pól-
land á velli hálum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Höskuldur Búi Jónsson
Höskuldur Búi Jónsson

Ég yrki og blaðra.

270 dagar til jóla

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband