Leita í fréttum mbl.is

Níðvísa

Hérna var einn gamall grár
geði var á tæpu.
Kjaftagleiður, þröngur, þrár
þurs með úldna ræpu.


Nátthildur Dimmalimm

Nötrar malið Nátthildar,
nú á öðrum slóðum,
ofan á kjöltu eilífðar,
upp að hlýjum glóðum.

2019-04-18 16.05.17


Stöku staka

Forsetinn:
Ekki er gatan alltaf breið

ýmsar hættur leynast,
en forsetinn hann fer þá leið
sem farsælust mun reynast.

Tengdamamma sjötug:
Að rótum hlúir, reitir arfa,
ræktar beð í erg og gríð.
Tengdamóðir mín mun starfa
meðal blóma alla tíð.

Sléttubönd:
Sjaldan yrki, vondar vísur
velta útúr kjafti.
Aldan gutlar, hávært hnísur
hlægja, skeljar lapti.

Brúðkaupsvísa:
Að ykkur núna allir dást,
það okkar gleði sannar.
Sífellt ræktið sanna ást,
Sigga Rún og Fannar.

Pottavísa:
Sólin glóir, geislar ljá
glit við sjó og potta.
Fegnir þangað fara þá,
ferðamenn til þvotta.

Sumarkuldavísa:
Norðanvindar naprir streyma,
nötrar allur Flóinn.
Víst er gott að vera heima,
þá vælir kaldur spóinn.

 


Höfundur

Höskuldur Búi Jónsson
Höskuldur Búi Jónsson

Ég yrki og blaðra.

249 dagar til jóla

Sept. 2019
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 262
  • Frá upphafi: 52451

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 256
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband