Leita í fréttum mbl.is

Tap heimilanna

Gefum okkur nokkrar forsendur, sem þurfa reyndar ekki allar að standast skoðun, en þetta ætti svo sem að geta gefið okkur upplýsingar um mælikvarðann á áhrifum þessa samráðs.

  1. Á vormánuðum seinustu hækkuðu væntanlega matvöruverslanir matvöruverð um 20%, vöruverð sem annars hefði mögulega ekki komið til vegna samkeppni (ég hef lægri töluna til að gerast ekki of gráðugur í túlkun minni).
  2. Á þeim sirka 10 mánuðum sem liðnir eru, hef ég keypt mér vörur í þessum matvöruverslanir fyrir um 550 þúsund krónur (þetta stendur skýrum stöfum í bókhaldinu mínu)
  3. Ef þessi hækkun hefði ekki komið til hefði ég eytt sirka 440 þúsund krónum í þessum verslunum (afleiðing liða eitt og tvö).
  4. Það eru þá 110 þúsund krónur sem ég og mín fjögurra manna fjölskylda höfum tapað á þessu verðsamráði.
  5. Ef við miðum við að það séu 300 þúsund manns sem búa hér á landi og að þetta sé normal eyðsla á hverja fjóra íbúa þessa lands (fólk er misjafnt, sumir eyða mun minna en sumir eyða mun meira).
  6. Þá má reikna: 300 þúsund (manns) sinnum 110 þúsund (krónur) deilt með fjórum = 8,25 milljarðar króna.

Athugið að ég hef ekkert fyrir mér í þessu nema fréttina sem ég las yfir á hundavaði, bókhaldið mitt og forsendur sem standast varla skoðun. En við sjáum allavega mælikvarðann með því að skoða niðurstöðuna (þó hún sé örugglega ekki rétt):

Matvöruverslanir eru búnar að hala inn rúmum átta milljörðum króna aukalega á kostnað neytanda, á síðustu 10 mánuðum.

Þeir fá að borga til baka eina milljón króna.

Sanngjarnt?

P.S. Ég gleymdi að koma með vísu:

Kál og rófu, krækiber 
kostnað nógan jóku.
í mínum lófa ekkert er
aura þjófar tóku.


mbl.is FÍS viðurkennir brot á lögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Höskuldur Búi Jónsson
Höskuldur Búi Jónsson

Ég yrki og blaðra.

271 dagur til jóla

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband