Leita í fréttum mbl.is

Þegar rignir

Þegar rignir, rýkur aldan
rokið skemmir svefn og vöku
Þá er fínt að fá sér kaldan,
fínan mjöð og yrkja stöku.
 

 


Stökur til geymslu

Sáttur rölti vetrarveg,
vorsólin er æðisleg,
lykt af sumri ljúft að dreg,
liti haustsins elska ég.

 

Í hliði dökku hokir spenna
til heljar sálir togar.
En varla munu bátinn brenna
blautir vítislogar.

Sumarglóð

Þó að haustið þenji kvið,
þagni bráðum fuglahljóð,

Kári blístri, bæli frið,
birtist ennþá sumarglóð.


Limru ákall

Ég heyri oft undarlaegt ákall
og ætla að hljómi þar bláfjall
en karlinn skal gá
oft kallar mig á
úr hjallinum, lykkja af hákall.


Alnetið

Þegar ég kláraði loksins að lesa allt alnetið:

Hérna lesið hef ég allt
og hraflið niður párað.
Alnetið hef sætt og salt
sopið gleypt og klárað.


Gróður

Hvarvetna að hníga rök
er hverfa gróðurtindar,
en öll við kannski eigum sök
einnig hraun og vindar.

Höfundur

Höskuldur Búi Jónsson
Höskuldur Búi Jónsson

Ég yrki og blaðra.

250 dagar til jóla

Sept. 2015
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 258
  • Frá upphafi: 52445

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 253
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband